
Það eru víða menn með geggjaðar hugmyndir. Ég lenti á sjónvarpsstöðinni Omega og þar sat maður með ísraelskan fána og gyðingastjörnu um hálsinn, sagði að víst væru gyðingar guðs útvalda þjóð og taldi að stofnun Ísraelsríkis væri undanfari að því að Jesús sneri aftur til jarðarinnar – gott ef hann átti ekki að tylla sér á Ólífufjallið?
Mér heyrðist hann vitna í Jesaja 33.
Svo var hann búinn að draga á flot einhvern vesalings bloggara af mbl.is sem náði samt ekki alveg að fylgja honum í ruglinu.