fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

Bunuel og trúarbrögðin

Egill Helgason
Miðvikudaginn 27. febrúar 2008 08:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=lcasqBRzeeA]

Merkilegt að heyra fólk segja að ekki megi ráðast á trúarbrögðin; hið öfuga er eiginlega satt, það á að ráðast á trúarbrögðin, hæða þau og spotta, til að þau hverfi inn á það svið þar sem þau eiga heima – á hinu einkalega – andlega – sviði, en séu ekki að þvælast á hinu veraldlega, oft sem argasta kúgunartæki.

Trúarbrögð eins og þau eru stunduð á Íslandi eru að flestu leyti ágæt. Það er hægt að bera þau saman við sjónvarp með mörgum rásum. Maður getur horft á Omega ef maður vill – en ef maður vill það ekki getur maður verið alveg laus við að horfa nokkurn tíma á þá stöð.

Einn mesti trúarbragðaspottari allra tíma var súrrealistinn Luis Bunuel. Hann ólst upp í Aragon héraði á Spáni, stundaði nám í ströngum jesúítaskóla; þetta innrætti honum ævilanga óbeit á krikjunni. Kaþólska kirkjan á Spáni á tíma Bunuels var hreint ógeð; hélt alþýðunni í fáfræði, studdi kúgara hennar.

Bunuel fór úr landi og gerði myndir eins og Gullöldina sem er árás á kirkjuna. Hann hélt þessu áfram allt sitt líf. Gamall maður gerði hann mynd sem heitir Vetrarbrautin; þar er kirkjan dregin sundur og saman í háði.

402_feature_350×180.jpg

Fyrir vikið var Bunuel lengst af landflótta frá Spáni; hann eyddi mestallri ævinni í Frakklandi og Mexíkó.

Fjölmenningarsinnar vilja halda því fram að maður eigi að bera virðingu fyrir trú annarra – hversu vitlaus sem hún er. Samkvæmt þeirri hugmynd fóru bæði Voltaire og Bunuel villur vega í árásum sínum á kirkju og kristni. Með sömu rökum hefði líka átt að sýna nasismanum umburðarlyndi (það gerðu reyndar sumir með tilvísan til Versalasamninganna). Þetta felur líka í sér að ekki séu til nein gildi sem eru betri en önnur. Öðru nafni kallast þetta menningarleg afstæðishyggja.

bunuel8.jpg

En það er vegna manna eins og Bunuels að ítök kirkjunnar á Spáni minnkuðu. Hún er reyndar að reyna að hafa áhrif á kosningarnar í landinu sem fara fram á Spáni 14. mars. Henni ofbýður hvað ríkisstjórn Zapateros er frjáslynd. Líklega verður henni ekki kápan úr því klæðinu. Kirkjan er sem betur fer veikluð; henni fer best að halda sig á andlega sviðinu.

Um þessar mundir er íslam uppivöðslusömustu trúarbrögðin. Innan þess er kúgunin mest og ofbeldið. Það væri óskandi að íslam gæti eignast sinn Bunuel – einhvern sem gæti hafist handa við að afhelga draslið. Það tekur langan tíma, er ábyggilega lífshættulegt, en nauðsynlegt.

* Hér að ofan er tengill á Gullöldina, mynd Bunuels frá 1930. Handritið skrifaði hann með vini sínum og landa Salvador Dali. Ljósmyndin er úr Vetrarbrautinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu