
Ég sé að einhverjir eru að kvarta undan pistli mínum um klæðaburð við veitingu blaðamannaverðlauna.
Eitt í þessu sambandi:
Á sjöunda áratug síðustu aldar fór klæðnaði háskólakennara mjög hnignandi. Fyrst hættu þeir að ganga með bindi, svo komu rúllukragapeysur, loks birtist Svanur Kristjánsson í háskólanum í gallabuxum, vaðstígvélum og hermannajakka.
Yfirvöld hugsuðu með sér: Svona mönnum þarf ekki að borga laun.
Framan af öldinni voru prófessorar við Háskólann með sama kaup og hæstaréttardómarar. Þá gegndu prófessorsembættum menn eins og Alexander Jóhannesson – hann gekk alltaf með harðan flibba, föðurmorðingja svokallaðan.
En svo fór að myndast mikið bil. Í kringum 1990 voru prófessorar með svipað kaup og stelpa sem afgreiðir í sjoppu.
Var hinn hnignandi fatasmekkur kannski skýringin?