
Blaðamannaverðlaunin eru ekki að gera sig.
Þetta má glöggt sjá ef skoðuð er ljósmynd á blaðsíðu fjögur í Morgunblaðinu í dag.
Þarna eru verðlaunahafarnir – sumir ágætlega að verðlaununum komnir – en enginn þeirra hefur haft fyrir því að fara í spariföt að þessu tilefni.
Einungis Kristján Már Unnarsson er með bindi.
Þetta ber ekki vott um mikla stemmingu fyrir verðlaununum.