fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026
Eyjan

Ástandið í Sjálfstæðisflokknum

Egill Helgason
Föstudaginn 22. febrúar 2008 12:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það ríkir skrítið ástand í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er ekkert endilega á þeim buxunum að víkja. Hanna Birna Kristjánsdóttir rær að því öllum árum að verða oddviti í borgarstjórn – það er ekki trúverðugt þegar hún segist ekki hafa vitað af skoðanakönnun sem óvænt dúkkaði upp. Heimildir mínar herma að stallsystur Hönnu í flokknum hafi pantað könnunina – þó ekki hún sjálf.

En Hanna Birna er langt í frá óumdeild í borgarstjórnarflokknum. Það er ekki víst að hún geti fengið meirihluta hans á bak við sig. Á meðan gerir Gísli Marteinn sér vonir um að geta orðið oddviti. Það byggir þó á því að Vilhjálmur fari ekki frá strax. Gísli passar sig á að vera mjög loðinn í tali þegar rætt er um pólitíska framtíð Vilhjálms.

Smá pása frá átökunum inni í flokknum frá þessu er atlaga Össurar að Gísla Marteini á bloggsíðu sinni. Ég er sammála þeim sem segja að þegar hafi verið gert alltof mikið úr henni. Það er samt ekki furða að sumir sjálfstæðismenn hafi gripið þetta fegins hendi.

Össur er augljóslega reiður vegna þess hvernig fór fyrir REI og orkuútrás á vegum þess fyrirtækis.

Hann sagði það reyndar berum orðum í bloggfærslu snemma vetrar. Það var í pistlinum þar sem hann uppnefndi Júlíus Vífil og kallaði hann „Júlíus Fífil“.

„Harðvítugustu innanflokksátök seinni ára í Sjálfstæðisflokknum hafa því miður nánast ónýtt vörumerkið REI hvað útrás varðar, og stórskaðað viðskiptavild Orkuveitunnar. Skemmdarverk þeirra má líklega meta á milljarðatugi ef miðað er við þá framvindu sem var í kortunum.“

Og áfram skrifar Össur:

,,Ég hika ekki við að meta kostnaðinn af skemmdum þeirra (það er þeirra borgarfulltrúa sem nefndir eru hér að ofan – innskot mitt) á REI á tugi milljarða. Þá er ótalinn skaðinn sem hlýst af missi lykilmanna en flótti þeirra virðist brostinn á, og láir þeim enginn.“

Og líka þetta:

,,Menn skulu ekki fara neitt í grafgötur með það, að valdarán sexmenninganna í borgarstjórnarflokki íhaldsins, sem framið var til að svala særðum metnaði, hefur haft ótrúleg verðmæti af Reykvíkingum, og laskað Orkuveituna og starfsmenn þess gríðarlega.“

Annars ætti Össur að skilja það – verandi eldri í tvævetur – að Samfylkingin á ekkert að vera að skipta sér af þessum slag innan Sjálfstæðisflokksins. Heilræði Napóleons sem ég vitnaði í um daginn eiga ágætlega við:

„Ekki trufla andstæðinginn meðan hann er að gera mistök.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu