
Ég var að fá í hendurnar safn fimm hljómdiska með Hinum íslenska þursaflokki.
Það er rétt sem ég las einhvers staðar. Þetta setur ný viðmið í svona útgáfu á Íslandi. Safnið er óvenju glæsilegt.
Þursaflokkurinn var eins og opinberun þegar hann kom fyrst fram stuttu áður en ég varð tvítugur. Það var einstakt hvernig hann blandaði saman framúrstefnulegu rokki og íslenskum þjóðlögum. Þetta hleypti nýju lífi í þjóðlagaarfinn; þau eru mörg þjóðlögin sem menn kannast við eingöngu vegna þess að Þursarnir tóku þau upp á arma sína.
Þetta var eins og ég segi framúrstefnurokk – progrokk – afskaplega vel spilað og útsett. Af einhverjum ástæðum fékk það samt náð fyrir augum pönkkynslóðarinnar. Sum lög Þursanna eru eins og undirspil úr partíum áranna í kringum 1980.
Þursaflokkurinn er með tónleika í Laugardalshöllinni á laugardagskvöldið skilst mér. Ég þarf að ná mér í miða.
— — —
Á umslagi fyrstu plötu Þursaflokksins var mynd af karli sem var ýmist kallaður Hemmi klink eða Hemmi maur. Hann setti svip á Miðbæinn þegar ég var að alast upp. Af einhverjum ástæðum verður mér stundum hugsað til þessa karls.