
„Hættið að leika fórnarlömb, komið út úr miðöldum,“ skrifar Villy Sövndal, formaður Sosialistisk folkeparti í Danmörku, á bloggi sínu um íslamska ofsatrúarmenn. SF er systurflokkur Vinstri grænna í Danmörku.
Sövndal segir að venjulegir Danir séu þreyttir á fjarstæðukenndum hugarórum samtakanna Hizb-ut-tahrir og geðveikislegum mótmælaaðgerðum þeirra. Hann sé einn þeirra.
„Formyrkvuð heimska ykkar á ekkert erindi,“ segir hann ennfremur, „því enginn vill búa til lengdar við ófrelsi, fáfræði og sjálfsmeðaumkvun.“
Sövndal segir að meðlimir Hizb-ut-tahrir eigi ekkert erindi í Danmörku enda muni þeir ekki ná markmiðum sínum um kalífadæmi í Evrópu og sharíalög. En ef þeir þráist við eigi þeir að gjöra svo vel að koma sér til Íraks eða Saudi-Arabíu þar sem hugmyndir þeirra fái kannski betri hljómgrunn.
Drífið ykkur þangað, segir Sövndal.
„I må videre – og det kan kun gå for langsomt!“
Greinina endar þessi danski sósíalistaforingi svo með þessum orðum þar sem hann lýsir því yfir að lýðræðið hafi yfirburði:
„Og det er vel tragedien i det hele: At mennesker der er vokset op i frihed og har fået muligheder, som deres forældres hjemlande aldrig ville have kunnet give dem, alligevel ender som religiøse fantaster med et had, til det samfund de bor i.
Og til dem som føler sig tiltrukket af Hizb-ut-Tahrir, og som nok møder modstand i tilværelsen – nøjagtig som alle andre mennesker møder modstand i tilværelsen: Kom ud af offer-rollen. Kom ud af middelalderen. Hav modet til at betjene jer af jeres fornuft. Anerkend demokratiets historiske overlegenhed, anerkend kvinders myndighed og ligestilling, anerkend fornuft og viden som grundlag for at møde andre mennesker. Så skal det nok gå alt sammen.“