
Það er varla hægt að sjá annað en að hörð valdabarátta geisi í Sjálfstæðisflokknum.
Geir Haarde segir að Vilhjálmur Þ. hafi viku til að ákveða sig.
Því er lekið út að Davíð Oddsson hafi sagt við Villa að hann ætti að sitja áfram.
Hver lak?
Hver ræður?
Það er pöntuð skoðanakönnun sem sýnir að Hanna Birna nýtur miklu meira fylgis en Vilhjálmur (og Gísli Marteinn).
Þessari könnun er lekið í Ísland í dag.
En hver pantaði hana?
Vilhjálmur segir sjálfur að hann ætli að láta heyra í sér „þegar hann er tilbúinn“.