
Það er mikið talað um að nú séu Kína og Indland að taka hin efnahagslegu völd í veröldinni. Á vinsældalista skoðana trónir þessi mjög ofarlega.
Hér er til dæmis grein þar sem höfundinum, Martin Jacques, tekst að tengja hrun Northern Rock bankans við annars vegar fall markaðshyggjunnar og hins vegar uppgang Kínaveldis.
Við höfum áður heyrt svona tal. Fyrir svona fimmtán til tuttugu árum var útbreidd skoðun að Japanir væru að taka yfir heiminn. Bandarískir stjórnmálamenn skoruðu prik með því að gera út á óttann við Japan.
Þekktur skáldsagnahöfundur skrifaði bók um þetta og svo var líka gerð kvikmynd. Michael Crichton er nánast eins og loftvog á ranghugmyndir sem tröllríða heiminum. Hann sá gula djöfla í hverju horni.