
Ég ætla að gera þá játningu að mér þykir Morgunblaðið vera besta blað á Íslandi.
Það er engan veginn gallalaust, en á fréttasviðinu hefur það algjöra yfirburði yfir fríblöðin og enginn keppir við hina víðfemu menningarumfjöllun í Mogganum.
Hin pólitísku skrif í blaðinu eru oft hreint skemmtiefni. Hins vegar mætti það koma sér upp fleiri og betri dálkahöfundum.
En lestur Moggans hefur hrapað eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Kannski er það óhjákvæmileg þróun. Áskriftarblöð eiga í vanda hvarvetna í heiminum. Unga fólkið elst upp við fríblöðin; meðal þess er það fjarlæg tilhugsun að kaupa áskrift að blaði.
Það er dálítið kaldhæðnislegt að Mogginn skuli birta minningargreinar. Í hverri minningargrein sér maður áskrifanda hverfa yfir móðuna miklu.
En um leið hrapar standardinn. Fríblöðin eru að mestu leyti efni sem er raðað í kringum auglýsingar. Mogginn gerir meiri kröfur til sín en það.
*Svo er það náttúrlega netið: Ég get upplýst að virku dagana í síðustu viku voru 54.648 heimsóknir á þessa vefsíðu, þar af 13.978 á mánudaginn. Ég er ekki viss um að Staksteinar hafi meiri lestur en þetta.