
Greining Stefáns Jóns Hafstein á borgarstjórninni er ekki fjarri lagi.
Að þar ríki stjórnarkreppa, glundroði, kjörtímabilið sé eiginlega ónýtt.
Það hafi varla verið neinn raunverulegur borgarstjóri í Reykjavík um langt árabil.
Stefán telur að borgarbúar eigi betra skilið.
Hann leggur til að Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og VG myndi „starfstjórn“ næstu tvö árin, leggi til hliðar ágreiningsmál (sem kannski eru ekki svo stór) en einbeiti sér að því að koma í verk málum sem flokkarnir eru sammála um.
Hljómar nokkuð skynsamlega.