
Vilhjálmur á að fá að ráða þessu sjálfur en það er greinilegt að Geir Haarde er tekinn að beita hann þrýstingi.
Geir sagði í Silfrinu í dag að Vilhjálmur hefði vikufrest.
En nú er spurning til hvers Vilhjálmur hefur frestinn?
Hann getur auðvitað lýst því yfir að hann haldi áfram og ekkert hafi breyst.
Eða:
Hann gæti lýst því yfir að hann ætli ekki að verða borgarstjóri eftir ár, en hann ætli að halda áfram sem formaður borgarráðs.
Í gegnum þá stöðu er hann líklega valdameiri en hinn veiklaði borgarstjóri Ólafur F. Villi er ábyggilega tregur að fórna því.
Eða hann gæti setið áfram sem óbreyttur borgarfulltrúi.
Og svo er náttúrlega möguleiki að hætta þessu alveg.