
Ég veit að þetta er feikilega mikilvægt og geysilega spennandi, en mér tekst samt ekki að fá raunverulegan áhuga á kapphlaupinu um hver verður forseti Bandaríkjanna.
Þetta er fáránlega langdregið. Og tilbreytingarlítið.
Ég hef líka alltaf haft á tilfinningunni að stjórnmál í Bandaríkjunum séu einhvers konar svindl þar sem peningar ráða öllu. En það er samt eitthvað fallegt við það að maður sem á ömmu sem er bláfátæk kona í Kenýa geti orðið forseti voldugasta ríkis í heimi.
Það er líka forvitnilegt í þessu sem á eftir að koma fram síðar. Til dæmis að sjá hvað býr í Barak Obama ef hann sigrar. Er einhver súbstans fyrir neðan orðagjálfrið? Og hvernig munu allir þeir sem finna til andúðar eða haturs á Bandaríkjunum bregðast við því ef þessi áferðarfallegi blökkumaður verður kosinn forseti?
Honum hefur verið líkt við Kennedy. Sá var dáður út um allan heim. Verður sömu sögu að segja af Obama – og mun það byggja á bættum almennatengslum eða einhvers konar stefnubreytingu?