
Khalid Sheik Mohammed og félagar hans eru einhverjir fyrirlegustu og viðurstyggilegustu glæpamenn í heiminum.
Þeir kunna að hafa verið beittir einhvers konar pyntingum eða þvingunum. Það er mjög líklegt að umræðan um réttarhöldin yfir þeim snúist fyrst og fremst um það og um Guantanamo.
Við megum samt ekki missa sjónar á glæpum þeirra. Þrjú þúsund manns fórust í árásinni á tvíburaturnana. Hryðjuverkamennirnir voru þess vegna tilbúnir að drepa þrjátíu þúsund eða þrjú hundruð þúsund. Hugmyndafræði þeirra byggir á algjöru skeytingarleysi um mannslíf.
En ég er samt þeirrar skoðunar að dauðarefsing eigi aldrei rétt á sér. Betra er að loka þá inni og henda lyklinum.