fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026
Eyjan

Valdatafl í Valhöll

Egill Helgason
Mánudaginn 11. febrúar 2008 19:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 big-valhlljpg.jpeg

Ég hef ekki alltaf lagt trúnað á sögur um klofning í Sjálfstæðisflokki – þessum stóra stjórnmálaflokki hefur gengið furðu vel að standa saman í gegnum tíðina, að minnsta kosti allar götur síðan Davíð tók við. Það hefur eiginlega verið aðdaáunarvert á sinn hátt.

En nú er svo komið að eina skýringin á atburðarásinni innan flokksins síðustu dagana virðast vera grimm innanflokksátök. Ég hef talað við ýmsa sjálfstæðismenn síðustu daga sem staðfesta þetta.

Það virðist liggja beint við að Hanna Birna Kristjánsdóttir taki við sem oddviti borgarstjórnarflokksins. Hópur í kringum Guðlaug Þór Þórðarson – og sem er líka nákominn Geir Haarde – má ekki hugsa þá hugsun til enda að Hanna Birna eða Gísli Marteinn komist til frekari metorða í flokknum.

Ef Hanna Birna yrði oddviti og þar með líklega borgarstjóri – og ef henni tækist vel upp – þá gæti hún jafnvel farið að íhuga frekari frama, jafnvel að verða formaður flokksins.

Sumum mislíkar þessi tilhugsun svo mikið að þeir eru frekar tilbúnir til að styðja Vilhjálm til að sitja áfram í oddvitasætinu. Þeir eru ekki vissir um að það gangi að gera hann að borgarstjóra – en þeir vilja frá tíma til að finna einhverja lausn á málinu.

Aðra lausn en að hleypa Hönnu eða Gísla að.

En á meðan magnast óánægjan innan Sjálfstæðisflokksins. Hópurinn í kringum Geir, Ingu Jónu, Borgar Þórs og Guðlaug hefur verið duglegur við að ná tökum á fulltrúaráðinu í Reykjavík og hverfafélögum – hefur lagt meira upp úr því en nokkurn tíma Davíð Oddsson. Í félögunum er fólk hins vegar að missa þolinmæðina með Vilhjálmi svo það er spurning hvaða styrk hann getur sótt þangað.

Ekki einu sinni Geir sjálfur treysti sér til að lýsa afdráttarlausum stuðningi við að Vilhjálmur yrði borgarstjóri.

En það er valdatafl í Valhöll – einu sinni enn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?