
Dr. Gunni er að gera þætti um tónlist á hljóðsnældum fyrir útvarpið.
Ekki að það komi þessu mikið við en hinn mikli meistari kassettunnar er enginn annar en Ajatolla Khomeini.
Khomeini var í útlegð í París, las boðskap sinn inn á hljóðsnældur sem síðan var dreift út um Íran og hinn íslamska heim.
Þetta endaði með byltingu – sem enn sér ekki fyrir endann á.