
Þetta er ein af fáránlegustu fréttunum af hlutabréfamarkaði sem virðist vera ansi sjúkur.
Stjórnendur SPRON voru í óða önn að selja hluti sína í bankanum á sama tíma og þeir voru að pranga hlutabréfunum upp á kaupendur – á verði sem reynist hafa verið fáránlega hátt.
Stjórnarformaðurinn segir að fyrirtækið hefði „allt eins getað hækkað“.
Einmitt. En hún seldi nú samt.