
Ég þoli ekki matardiska sem eru þannig að ískrar í þeim undan hnífapörunum.
Ég get ekki horft á myndir með John Malkovich.
Ég læt fara í taugarnar á mér þegar íþróttafréttamenn segja að eitthvað sé „ótrúlegt“.
Ég slekk á útvarpinu þegar kemur lag með Tom Waits.
Ég verð lasinn ef ég borða ostrur, en mér finnst lakkrís vondur.
Ég finn lopabragð af kindakjöti og þráabragð af geitakjöti – geitabragð.
Ég hef aldrei drukkið mjólk.
Ég þoli ekki þegar einhverju er líkt við konfekt – eða konfektkassa.
„Bókin er eins og konfektkassi.“
Eða hnossgæti. Eða sælgæti
„Algjört sælgæti fyrir bókmenntaunnendur.“
Urrggh.
Og ég þoli ekki þegar er talað um „ljóðið“.
„Ljóðið ratar til sinna.“
Ég held ekki.