
Slavoj Zizek hefur verið kallaður poppstjarna í heimi fræðanna. Þessi slóvenski heimspekingur er ekki bara feiki afkastamikill rithöfundur, djúpur og frumlegur hugsuður, heldur þykir honum einstaklega gaman að tala. Hann lætur móðan mása svo unun er að hlýða á og er jafnvígur á marga hluti, meðal þess sem ber á góma í viðtali við hann í Kiljunni í kvöld eru kínverskur herskálakapítalismi, furður líftækninnar sem breyta viðmiðum í siðfræði, íslenskur mosi og Arnaldur Indriðason.
Að ógleymdri bókinni Óraplágunni eftir Zizek sem er nýkomin út í flokki Lærdómsrita Bókmenntafélagsins.