
Stjórnmálaheimspekingurinn Francis Fukuyama er í viðtali hjá Clement Kjersgaard í danska sjónvarpinu.
Fukuyama segir að ríki Evrópu séu komin lengra á þróunarbrautinni – nær „endalokum sögunnar“ – en Bandaríkin.
Þau séu að snúa baki við stjórnmálum sem gangi út á að beita valdi, heldur leggi þau áherslu á lög og rétt – the rule of law.
Merkilegt að heyra þetta frá þessum áhrifamikla – og hægri sinnaða – heimspekingi.
Minni í þessu sambandi á viðtal mitt við Slavoj Zizek í Kiljunni á morgun – hluti af því er á slóðum sem eru ekki allfjarri þessu.