
Ungur lögfræðingur – sem einnig starfaði sem fréttamaður um tíma – Finnur Vlhjálmsson skrifar forvitnilega grein um pólitísk skrif í Mogganum.
Hann gengur út frá hugtakinu „strámaður“:
„Strámaður er fyrirbæri sem þekkt er úr rök- eða mælskulist (ég nota hér orðið list lauslega). Í stað þess að ræða málefnalega og í góðri trú um efni málsins beita menn þeirri brellu að búa til annað umræðuefni – strámann – og reyna að setja hann í staðinn. Hráefni strámannsins getur verið fjölbreytt og verður best skilgreint neikvætt: allt annað en raunverulegt efni og kjarni málsins. Ástæða þessa er vitaskuld sú að menn vita að þeir hafa slæman málstað að verja og vilja að eitthvað annað og viðráðanlegra komi þar í staðinn, helst af öllu þeim í hag.“
Sjá hérna.