
Með ákvörðuninni um að kaupa húsin á Laugavegi 4 og 6 er ljóst að deiliskipulag Laugavegarins er fallið. Mikil vinna fór í það á sínum tíma, með samráði við kaupmenn við Laugaveginn, ekki síst Bolla Kristinsson í versluninni Sautján. Verslunarhúsin sem hann átti til skamms tíma bjóða af sér einstaklega góðan þokka, ekki síst hús sem var reist í anda svokallaðrar steinsteypuklassíkur.
En eftir þessar málalyktir er ljóst að skipulagið er ekki pappírsins virði. Laugavegurinn mun ekki breytast – svo er annað mál hvort mönnum þykir það gott eða slæmt.
Nýrrar borgarstjórnar – og sérstaklega Hönnu Birnu, formanns Skipulagsnefndar – bíður að berja saman nýtt skipulag þessarar umdeildu götu. Þangað til verðum við kannski að notast við skipulagið hér að ofan sem Halldór Baldursson teiknaði.