
Það hef ég á tilfinningunni að skrílslætin í Ráðhúsinu í dag hafi þveröfug áhrif.
Að þau muni vekja samúð með Ólafi F. Magnússyni.
Ekki er heldur traustvekjandi að til mótmælanna skuli hafa verið boðað af ungliðahreyfingum flokkanna sem eru að missa völd í borgarstjórninni.
Má vera að sé reiði meðal almennra borgara, en hún birtist ekki þarna.