
Sumir hugsa stórt.
Smáborgin Sönderborg á Jótlandi hefur fengið frægasta arkitekt heims, Frank Gehry, til að endurskipuleggja hafnarsvæðið í borginni. Að baki liggur sá metnaður að Sönderborg verði bær sköpunar og framfara.
Hér í Reykjavík hefur ekkert hreyfst í skipulagsmálum um langt árabil. Í borgarstjórninni ríkir glundroði. Það er rifist um tvö hálfónýt hús. Á meðan er smáborg í Danmörku að fá til sín manninn sem teiknaði hið stórkostlega Guggenheimsafn í Bilbao.
Raunar skilst manni að brátt eigi að tilkynna um úrslit mikillar hugmyndasamkeppni um Vatnsmýrina. Á sama tíma og kominn er borgarstjóri sem vill ekki hrófla við neinu þar.