fbpx
Sunnudagur 22.febrúar 2026
Eyjan

Valdabrölt

Egill Helgason
Þriðjudaginn 22. janúar 2008 11:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á vef Deiglunnar sem er haldið úti af ungu sjálfstæðisfólki má lesa prýðilegan leiðara um ófremdarástandið sem ríkir í borgarstjórn Reykjavíkur:

„Það verður að segjast að sú atburðarrás sem borgarbúar, og þjóðin öll hefur horft upp á, er ákaflega dapurlegur vitnisburður um þau öngstræti sem valdabrölt í pólitík getur leitt menn í. Það þarf mikið hugmyndaflug til þess að trúa því að hugsjónir og hugmyndir hafi ráðið miklu um þær fléttur sem settar hafa verið á svið á síðustu mánuðum. Sjálfstæðismenn, sem voru sviknir síðastliðið haust, hafa náð fram hefndum. En hefndin er hvorki gott vegarnesti né góð ástæða til þess að leggja í vegferð. Það er því ákaflega brýnt að hinn nýi meirihluti – þegar gleðivíman er runninn af honum – finni sér brýnna erindi í sínum störfum heldur en að fullnægja hefndarþorsta.“

Og ennfremur:

„Til þess að unnt sé að réttlæta fyrir kjósendum þá ákvörðun Sjálfstæðisflokksins að taka þessa pólitísku áhættu dugir ekki aðeins Þórðargleði yfir óförum andstæðinga flokksins. Slíkar hvatir ættu með réttu að renna hratt af flokksmönnum eftir að helsti hamagangurinn er yfirstaðinn. Það sem Sjálfstæðisflokkurinn þarf er að sýna og sanna að hann sé verðugur trausti kjósenda, að hann starfi samkvæmt skynsemi og hugsjónum – og láti ekki borgarbúa greiða ofurverð fyrir embætti og titla.

Meirihlutasamningurinn sem kynntur var í gær lofar ekki góðu. Hann var bersýnilega settur saman í flýti og að undanskilinni hækkun á tekjumörkum vegna fasteignaskatta er ekkert málefnalega við þennan meirihluta sem miðar að þeim nauðsynlegu breytingum sem gera þarf í borginni – að draga úr útþenslu borgarkerfisins, lækka álögur á borgarbúa og setja kraft í uppbyggingu borgarinnar. Það litla sem má lesa úr þeim 17 punktum sem taldir eru upp eru íhaldssöm viðhorf, varðveisla gamalla kofa og pattstaða í flugvallarmálinu – einu brýnasta verkefni borgarmálanna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?