
Hlutabréfamarkaðurinn hrynur enn. Úrvalsvísitalan hefur ekki verið lægri síðan 2005.
Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, skrifar grein í Moggann í morgun um það hvernig bregðast skuli við.
Lækka vexti. (Þarf ekki einfaldlega að gera það strax, ekki bíða eftir fyrirfram settum vaxtaákvörðunardegi?)
Hraða ákvörðunum um uppbyggingu stóriðju.
Lækka skatta á fólk og fyrirtæki.
Er ekki líklegt að viðhorfin breytist fljótt ef enn harðnar á dalnum – sérstaklega hvað varðar virkjanir og stóriðju?