fbpx
Sunnudagur 22.febrúar 2026
Eyjan

Elísabet og Hillary

Egill Helgason
Þriðjudaginn 22. janúar 2008 09:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

evertop7.jpg

Væri ég breskur þegn er ég ekki viss nema ég stæði með mótmælaspjald utan við Buckingham Palace þar sem ég heimtaði afnám konungsveldisins.

Ég segi bara eins og er: ég hef djúpa skömm á kóngum og drottningum og öllu sem því tengist. Í lýðræðisþjóðfélagi er fáránlegt að fólk eignist forréttindi og völd af þessu tagi bara vegna þess hverrar ættar það er.

Breska kóngafólkið er af þýskri ætt sem kallast Saxe-Coburg-Gotha. Þegar breska heimsveldið barðist við Þjóðverja þótti þetta pínlegt; þá var nafninu breytt í Windsor. Elísabet drottning og maður hennar Filippus eru skyld hvort öðru á svo marga vegu að það er varla hægt að reikna það út.

Þetta var útúrdúr.

Nú er mikið uppnám á Nýja Sjálandi – sem hefur Bretadrottningu að þjóðhöfðingja – vegna þess að drottningin ætlar ekki að mæta í útför fjallgöngumannsins Sir Edmunds Hillary. Hún ætlar ekki einu sinni að senda einhvern minniháttar ættingja sinn.

Ástæðan fyrir reiðinni er sú að Elísabet og Edmund hafa löngum verið tengd í hugum fólks. Tilkynnt var um afrek Hillarys er hann kleif Everesttind sama dag og Elísabet var krýnd árið 1953. Þá töluðu fjölmiðlar um að upp væri runnin ný Elísabetaröld – að breska heimsveldið væri búið að endurheimta dýrð sína eftir stríðið.

Á Nýja Sjálandi eru margir móðgaðir vegna þessa, sumir eru það í alvörunni, aðrir þykjast vera það í von um að landar þeirra fari nú að losa sig undan þessu hundleiðinlega liði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?