
Ekki veit ég hvort er hægt að horfa einhvers staðar á Afríkumótið í fótbolta, en einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að það sé miklu skemmtilegra en Evrópuboltinn.
Eða eins og Marcel Desailly segir: Í Evrópu snýst fótboltinn um viðskipti, sjónvarp og bikara. Í Afríku snýst hann um liti, dans, að gera eitthvað sem er sérstakt.