
Þjóðargrafreiturinn á Þingvöllum mun hafa verið hugmynd Jónasar frá Hriflu. Þetta átti að vera eins konar íslenskt Westminster Abbey – undir berum himni – á þeim helga stað Þingvöllum. Guðjón Samúelsson var fenginn til að hanna grafreitinn – hann er látlaus að allri gerð.
Meintum beinum Jónasar var holað þarna niður eins og frægt var. Einar Benediktsson var líka grafinn þarna. Svo var stopp. Allir andans jöfrar sem önduðust á Íslandi eftir þetta reyndu að passa upp á að þeir lentu ekki á þessum stað. Einstöku sinnum komu upp raddir um að rétt væri að jarðsetja þennan eða hinn í grafreitnum; þá gripu yfirleitt skynsamir ættingjar í taumana.
Þjóðargrafreiturinn varð skotspónn háðfugla. Svo gleymdist hann eiginlega alveg. Stundum rekst maður á hann á göngu um Þingvelli – og verður alltaf jafn hissa.
Nú hefur verið stungið upp á að Bobby Fischer verði látinn hvíla í þjóðargrafreitnum.
Það yrði skrítin þrenning: Jónas, Einar Ben og Bobby.