fbpx
Sunnudagur 22.febrúar 2026
Eyjan

Innrás úr geimnum

Egill Helgason
Laugardaginn 19. janúar 2008 13:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

class_x.jpg

David Cox bloggar á vef Guardian um að hann vill meina stórhættulegt framtak rússnesku vísindaakademíunnar – að senda sterkar útvarpsbylgjur djúpt út í geiminn til að reyna að ná sambandi við geimverur.

Hér á við það sem var eitt sinn sagt: Be afraid, be very afraid.

Cox telur víst að sé til líf á öðrum hnöttum. Sumt geti jafnvel verið háþróað. En um leið álítur hann að eins líklegt sé að það sé stórhættulegt – eins og maðurinn er reyndar sjálfur.

Segjum sem svo að jarðarbúar myndu hefja landnám á hnetti þar sem væru íbúar fyrir, kannski ekki jafn þróaðir og við. Er ekki víst að þeir þyrftu ekki að kemba hærurnar – eða fálmarana?

Einhverjir marsbúar gætu semsagt numið boðin og ákveðið að koma hingað í könnunarferð eða jafnvel landnámsleiðangur. Þá er eins líklegt að útkoman verði Independance Day eða Mars Attacks fremur en ET.

Cox vitnar í tvo þekkta stjörnufræðinga. Annar sagði að verur úti í geimnum gætu verið bæði „klókar og vel vopnum búnar“.

Hinn sagði:

„Ef við heyrum geimsímann hringja skulum við í guðanna bænum ekki svara. Við skulum ekki draga athygli að sjálfum okkur.“

Cox vill að breski utanríkisráðherrann kvarti við Rússa yfir þessu – líkt og ýmsu öðru – áður en Rússar verði í ógáti valdir að tortímingu jarðarinnar.

— — —

Gott upphaf að geimmynd:

Ring Ring.

„Hello, are you calling us? You want to talk to our master. Can we talk to your master?“

Knirk knirk.

„Just wait a moment.“

Búmm. Búmm. Ba-Búmm.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?