fbpx
Föstudagur 20.febrúar 2026
Eyjan

Undarlegt fjaðrafok út af ÍLS

Egill Helgason
Miðvikudaginn 28. nóvember 2012 08:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir hafa talað opinskátt um vanda Íbúðalánasjóðs síðustu daga – enda er staða hans herfileg.

Meðal þeirra eru Árni Páll Árnason sem var í viðtali í Silfri Egils á sunnudaginn og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir í viðtali við Bloomberg sem birtist í gær.

En af einhverjum ástæðum kusu menn að gera ótrúlegt fjaðrafok út af orðum Sigríðar. Jú, hún er þingmaður – en það verður ekki séð að hún sé sérstakur innherji hjá Íbúðalánasjóði.

Hún er einfaldlega að tala um stórt vandamál sem kemur allri þjóðinni við.

Í Kauphöllinni var sett á svið mikið leikrit þar sem viðskipti með bréf sjóðsins voru stöðvuð.

Ekki breytir það þeirri stöðu sem hefur legið fyrir um skeið að ríkið þarf að dæla peningum inn sjóðinn, fyrsti skammturinn verður 12 milljarðar, en þá er vandinn alls ekki leystur.

Bæði Sigríður Ingibjörg og Árni Páll tala um nauðsyn þess að gera gagngerar breytingar á hlutverki sjóðsins, eins og er stendur hann ekki undir sér – og hann þjónar ekki heldur þeim tilgangi að gera landsmönnum kleift að eignast húsnæði á skynsamlegan hátt.

Hér má sjá Silfur helgarinnar, viðtalið við Árna Pál er atriði númer tvö í þættinum, það er undir lok viðtalsins að við tölum um Íbúðalánasjóð:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Planið er að virka – spyrjið bara Fitch!

Orðið á götunni: Planið er að virka – spyrjið bara Fitch!
Eyjan
Fyrir 1 viku

Formannsslagur í Framsókn: Síðasta ríkisstjórn fjárfesti gríðarlega í innviðum, segir Lilja Alfreðsdóttir

Formannsslagur í Framsókn: Síðasta ríkisstjórn fjárfesti gríðarlega í innviðum, segir Lilja Alfreðsdóttir