fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Eign finnst í þrotabúi…

Egill Helgason
Laugardaginn 28. desember 2013 17:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baggalútur hittir algjörlega naglann á höfuðið í þessum litla dálki:

Eign finnst í þrotabúi.

Í gær birtist frétt um þrotabú félags sem nefndist Skildingur. Það var stofnað utan um starfsemi fólks sem á sínum tíma var stjórnendur hjá Icelandair.

Þetta er gjaldþrot upp á 2,6 milljarða króna – og nei, engin eign fannst í þrotabúinu.

Samt þykir eðlilegt að fólkið sem þarna kom við sögu sé í forsvari fyrir stór fyrirtæki eða sitji í stjórnum þeirra.

Maður las aðra frétt af sama toga. Hún fjallar um 30 milljarða króna gjaldþrot Stapa, það var fjárfestingarfélag þar sem stór eigandi var Magnús Kristinsson útgerðarmaður.

Engar eignir fundust í þrotabúinu – hvað annað?

Magnús var einn þeirra sem notaði útgerðarauð sinn og veðrými vegna kvóta til að fjárfesta í alls kyns „óskylda starfsemi“. Mikið af því var einfaldlega brask.

Fréttin vekur nokkurn ugg, því margt bendir til þess að sami leikur sé að hefjast aftur, það er stórúgerðin sem hefur yfir mestu fjármagni að ráða á Íslandi (ásamt lífeyrissjóðunum) og hún dafnar vel innan gjaldeyrishaftanna og er aftur farin að kaupa sig inn í „óskylda starfsemi“ – Moggann, Plastprent, Jarðboranir, Kassagerðina, Olís, það hefur jafnvel verið spekúlerað að banki gæti bæst á þennan lista innan tíðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær