fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Að elska að hata

Egill Helgason
Föstudaginn 27. desember 2013 19:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðalagið „að elska að hata“ kemur úr ensku – er notað af nokkurri léttúð í því tungumáli.

Það fyrirfinnst varla í íslensku, nema sem enskusletta, og er hálf merkingarlítið.

En stendur nú sem fyrirsögn á grein um Vigdísi Hauksdóttur sem má lesa á Vísi.is.

Konan sem svo margir elska að hata er fyrirsögnin.

En hver hatar Vigdísi Hauksdóttur?

Menn geta verið ósammála henni eða sammála eftir atvikum, haft óbeit á skoðunum hennar eða fundist þær frábærar – eða jafnvel verið í þeim hópi fólks sem nennir ekkert að hlusta á það sem hún hefur að segja eða aðrir stjórnmálamenn?

En hatur kemur málinu ekkert við.

Svo ég tali fyrir sjálfan mig:

Það er alveg fráleitt að hata fólk vegna stjórnmálaskoðana. Ég get verið ósammála fólki og jafnvel deilt við það. En maður skyldi alltaf heilsa andstæðingum sínum glaðlega og innilega – eins og þar séu góðir vinir á ferð – og vera sérstaklega vingjarnlegur við þá sem hafa talað verst um mann.

Það getur meira að segja stundum gert þá frekar vandræðalega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær