Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambandsins, er reiður vegna neikvæðrar umræðu um kjarasamningana sem hann gerði í gær, honum er meira að segja gróflega misboðið. Einhvern veginn verður að segja að reiði Gylfa hefur holan hljóm. En honum finnst framlag sitt til bættra kjara vinnandi fólks ekki metið að verðleikum.
Það hlýtur að fara að koma að leiðarlokum hjá þessum forystumanni alþýðunnar á Íslandi.
Halldór Baldursson fangar viðhorfið til alþýðuleiðtogans vel í enn einni snilldarteikningunni sem birtist í Fréttablaðinu í morgun:
Gylfi má þó eiga að hann hefur sér til afsökunar að meðan krónan er eins og hún er mun ganga erfiðlega að hækka kaup án þess að verðbólga éti allt upp – hún er reyndar þegar komin langleiðina með að éta kjarasamninginn frá því í gær.