Það verður mikill sigur fyrir ríkisstjórnina ef henni tekst að búa svo um hnútana að kjarasamningar verði kláraðir fyrir jól.
Eins og lesa má hérna er ýmsu lofað til að liðka fyrir kjarasamningum, að gjöld hækki ekki, smávægilegum skattalækkunum er heitið og breytingum á skattþrepum og svo á að setja á stofn nefnd ríkis og aðila vinnumarkaðarins til að hafa eftirlit með verðlagsmálum – þar kemur „handaflið“ til skjalanna eins og kallað var í gamla daga.
En það eru ekki allir jafn hrifnir af þeim litlu kauphækkunum sem verkalýðshreyfingin er að semja um. Þar má nefna baráttumanninn Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness:
Hann skrifar á Facebook síðu sína:
„Er staddur í húsakynnum Ríkissáttasemjara þar mér sýnist íslensk verkalýðshreyfing sé endanlega að deyja drottni sínum. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar er bent á launataxta verkafólks!“