Af jólakveðjum sem ég fæ þykir mér einna vænst um kveðjuna sem Dimitris, vinur minn á Naxos, sendir mér árlega.
Dimitris er tveggja metra hár maður, glæsimenni, afskaplega ljúfur, vænn og hjálpsamur, hann rekur hótel sem nefnist Grotta á eyjunni Naxos ásamt systur sinni Nicolettu. Faðir hans og móðir stofnuðu hótelið fyrir mörgum árum. Við fjölskyldan höfum oft gist á hótelinu, það er ekki sérlega dýrt, en er alveg framúrskarandi eins og sjá má á Tripadvisor.
Hótelið er staðsett nyrst í Naxosbæ – íbúarnir eru svona 7000 og bærinn afskaplega fallegur og sjarmerandi – í hverfi sem nefnist Grotta sökum þess að þar er að finna hella meðfram sjónum.
Svona lítur jólakveðjan frá Dimitris út þetta árið. Þetta eru frekar Miðjarðarhafsleg jól, með víni og ólífum. Hann hefur lagt talsvert á sig til að ná þessari mynd, því í bakgrunninum sérst uppljómað Portara, þetta er 2500 ára gamalt marmarahlið sem er tákn Naxoseyjar.