Tímaritið The Economist velur Uruguay sem land ársins.
Það nefnir ástæður sem tengjast umbótamálum, Uguguay hafi heimilað hjónabönd samkynhneigðra, framleiðsla, neysla og sala kannabis hafi verið leyfð í landinu – og með því hafi lögregla fengið svigrúm til að sinna alvarlegri afbrotum.
Einnig hrósar blaðið forseta landsins. José Mujica, og segir að hann sé bæði hreinskilinn og lítillátur, hann búi í litlu húsi, keyri Volkswagen bjöllu og ferðist á almennu farrými flugvéla.
Önnur lönd sem blaðið nefnir eru Írland sem er hrósað fyrir að hafa komist í gegnum efnahagsörðugleika með ró og hugrekki og Eistland sem er með lægstu skuldir í Evrópu.
Mjög athyglisverður þjóðarleiðtogi, José Mujica, forseti Uruguay. Hann er fyrrverandi skæruliði úr Tupamaros og er sagður gefa 90 prósent tekna sinna til góðgerðamála.