fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Íslendingar, enskan og danskan

Egill Helgason
Miðvikudaginn 18. desember 2013 17:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslendingar færast stöðugt nær því að verða tvítyngdir.

Börn alast upp við tölvuefni sem er mikið til á ensku, sjónvarpsefnið er á ensku – með tilkomu efnisveita eins og Netflix færist enskunotkunin enn í aukana, það er vandséð að hægt verði að koma þar inn  íslenskum texta.

Þetta er annað en var á tíma Kanasjónvarpsins, þá sat þjóðin og horfði á mynd sem var öll í móðu og skildi orð og orð á stangli.

Nú fara börnin í skólana og kunna mikla ensku, stundum ekkert minni en kennararnir.

Á sama tíma er þrengt að öðru málanámi. Máladeildir eru að leggjast af í menntaskólum. Það er eins og enskan ein eigi að duga okkur í samskiptum við erlendar þjóðir – og kannski tekur hún við af íslenskunni fyrr en varir.

Borgarstjórinn í Reykjavík heldur ræðu og hefur það helst til málanna að leggja að nauðsynlegt sé að hætta að kenna börnum dönsku. Manni skilst helst að það sé einhvers konar pynting að læra dönsku.

Kannski er ekki nauðsynlegt að kenna dönsku eins og hún er töluð í Kaupmannahöfn anno 2013. Hún  hefur þróast í heldur skringilega átt. En mikið yrðum við Íslendingar snauðari ef við hættum að geta tjáð okkur á Norðurlandamálum, lesið þau og skilið þau.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur