fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Glufu er haldið opinni

Egill Helgason
Þriðjudaginn 17. desember 2013 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, áréttar það sem er reyndar vitað í viðtali við Rúv – það er ekki búið að slíta aðildarviðræðunum við Evrópusambandið.

Á þeim hefur verið hlé, reyndar hefur það staðið síðan á síðasta misseri ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms, og viðræðunefnd Íslands hefur verið leyst upp.

Menn eru farnir að velta fyrir sér hvort standi yfirleitt til að draga aðildarumsóknina til baka. Fyrir Sjálfstæðisflokkinn er þetta vandræðamál, forysta hans var búin að hafa uppi stór orð um þjóðaratkvæðagreiðslu, atvinnulífsgeirinn sem tengist flokknum vill halda áfram sem og drjúgur hluti flokksmanna.

Og svo er líka hitt að það gæti verið ágætt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að halda umsókninni opinni. Það styttir leiðina verulega yfir til Samfylkingar og Bjartrar framtíðar ef stjórnarsamstarfið við Framsóknarflokkinn fer út um þúfur.

Framsóknarflokkurinn hefur miklu meiri hag af því að slíta viðræðunum. Meðal kjósenda hans er varla nokkur stuðningur við Evrópuaðild. Forystumenn í Framsókn tala mjög digurbarkalega um ESB, ólíkt til dæmis Bjarna Benediktssyni. Og með því að slíta yrði betur girt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn gæti farið í samstarf við aðra flokka.

En á meðan ókyrrast Heimssýnarmenn og Hádegismóar sem vildu helst sjá endi bundinn á umsóknina í eitt skipti fyrir öll.

Ruglingurinn með IPA-styrkina kemur svo inn í þetta. ESB veit ekki hvað Ísland ætlast fyrir. Íslensk stjórnvöld verða sár yfir peningum og verkefnum sem tapast. Menn segja að ekki verði bæði haldið og sleppt – en í því að slíta ekki aðildarviðræðunum fyrir fullt og allt felst auðvitað ákveðin pólitísk afstaða. Glufu er haldið opinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi