Hér er nokkuð skemmtileg úttekt á vefnum Think Progress. Þar segir að 2013 sé besta ár í sögu mannkyns.
Þetta er stór fullyrðing, en fyrir þessu eru færð rök.
1. Fólk lifir lengur, færri deyja ungir.
2. Færra fólk býr við algjöra fátækt.
3. Stríð eru sjaldgæfari en áður og ekki jafn mannskæð.
4. Morð- og glæpatíðni lækkar ört.
5. Það er minna um rasisma, kvennakúgun og mismunun.
Allt er þetta stutt með dæmum og skýringamyndum, svo umfjöllunin er mjög áhugaverð.