Sum mál eru ekki stór, en athyglisverð vegna þess að þau birta heimsku í sinni tærustu mynd.
Í dag má lesa litla frétt um leikskólana Tjarnarborg og Öldukot sem borgin vill sameina undir nafninu Tjörn.
Þetta eru afar vinsælir og vel liðnir skólar, Tjarnarborg hefur starfað í 70 ár en Öldukot í aldarfjórðung.
Foreldrar sem eiga börn í skólunum og starfsfólk þeirra er á móti þessari nafnabreytingu – finnst hún alveg tilgangslaus.
Hví mega skólarnir ekki halda sínum nöfnum þrátt fyrir sameiningu?
En málið er samt keyrt í gegn í borgarkerfinu – til hvers, spyr maður, cui bono?
Skýringin getur ekki verið önnur en heimska.
Sjálfur var ég í Tjarnarborg þegar ég var lítill, en sonur minn var í Öldukoti.