fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Hvar er íslenska jólamyndin?

Egill Helgason
Þriðjudaginn 10. desember 2013 22:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er af fyrstu kynslóð barna sem hafði íslenskt sjónvarp. Ég man hvað maður var spenntur á aðfangadag þegar voru sýndar barnamyndir í heila tvo tíma. Það var algjör hátíð.

Nú er meira framboð, við getum jafnvel sagt offramboð, og jólamyndir eru sýndar allan desember – þykja núorðið partur af hátíðinni.

Maður getur eiginlega ekki komist hjá því að sjá myndir eins og Elf, Love Actually og National Lampoon’s Christmas Vacation. Þetta eru kvikmyndir sem mala gull um hver jól.

Ég fór að velta því fyrir mér af hverju væri ekki til íslensk jólamynd, mynd sem Íslendingar myndu horfa á í desember til að komast í jólaskap.

Er þetta ekki tilvalið fyrir snjalla kvikmyndagerðarmenn?

Stikkorð: Þorláksmessa, jólabjórinn, eitthvað í skóinn, misheppnaður sörubakstur, rjúpur eða skortur á rjúpum, veðurteppt fólk, flókin fjölskyldutengsl o.s.frv.

159580-elf_6

Elf er vinsæl jólamynd – og raunar nokkuð skemmtileg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi