Það er stórfrétt og gleðileg að hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi þessa árs sé 4,9 prósent – og hagvöxtur á árinu 3,1 prósent.
Skýringar, maður hefur ekki heyrt mikið af þeim, en segir þó að þetta sé drifið áfram að útflutningi?
Þar er náttúrlega makríllin – jú, og ferðamenn teljast líklega til útflutnings í þessu samhengi. Þeir koma með gjaldeyri til landsins.
Það sem er að gerast hér í ferðamennskunni er náttúrlega lyginni líkast. 46 þúsund ferðamenn í nóvember – í þessum dimma mánuði.
Svo geta menn deilt um hvort þetta er fyrri ríkisstjórn eða núverandi ríkisstjórn að þakka – hvorugri ríkisstjórninni eða þeim báðum eða kannski ytri aðstæðum.