fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Meira í heilbrigðiskerfið, jafnlítið eða minna í annað

Egill Helgason
Miðvikudaginn 4. desember 2013 16:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Því var spáð hér á síðunni fyrir nokkru að áður en fjárlög yrðu endanlega afgreidd myndi finnast fé til að leggja í Landspítalann.

Flestir munu verða sáttir við það. Þetta verður vinsæl aðgerð.

En það þýðir líka, eins og þá sagði, að tæplega verður bætt við meiru annars staðar – fremur er líklegt að meira verði klipið af.

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárveitinganefndar, boðaði í gær meiriháttar breytingar á fjárlögunum frá fyrstu umræðu. Hún segir að verið sé að „hliðra til“ svo hægt sé að setja meira fé í heilbrigðismálin.

Þetta þýðir líklega að aðrir sem hafa orðið fyrir niðurskurði þurfa ekki að búast við að fá mikla úrlausn sinna mála, ekki einu sinni þót mótmæli hafi heyrst.

Í kvöld er boðað til fundar til að mótmæla niðurskurði hjá Ríkisútvarpinu. Það bendir allt til þess að þetta verði nokkuð fjölmennur og kröftugur fundur – listi ræðumanna bendir til þess. Hins vegar er afar ólíklegt að niðurskurðurinn til Ríkisútvarpsins verði dreginn til baka – raunar er miklu líklegra að ákveðið verði að bæta í og taka meira fé af RÚV, eins og menntamálaráðherra hefur talað um.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi