Mér sýnist Stefán Ólafsson prófessor vera með gleggstu og yfirveguðustu greininguna á aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem boðaðar voru í gær.
Stefán segir meðal annars:
„Þó þessi aðgerð ríkisstjórnarinnar sé góð er hins vegar mikið vafamál hvort hún nær því máli að verða stærsta skuldaleiðrétting sögunnar.
Að meðaltali er talið að skuldir heimilanna muni lækka um 13% vegna þessara tvíþættu aðgerða, sem er um 8,8% af landsframleiðslu. Skuldir heimila lækkuðu hins vegar úr 129% af landsframleiðslu árið 2009 í 108% 2013, eða um 21%-stig. Að auki hækkaði fyrri ríkisstjórn vaxtabætur verulega, sem nemur tugum milljarða á kjörtímabilinu.
Ef ríkisstjórnin sleppir því að draga frá það sem veitt var í 110% leiðinni og hækkar persónuafslátt myndarlega í tengslum við kjarasamninga þá stendur hún með pálmann í höndunum.
Hún mun þá uppskera meira hagvaxtarbúst að auki, sem gerir allt líf hennar auðveldara í framhaldinu.
Þar eð aðeins er verið að setja um 20 milljarða aukalega inn í hagkerfið á ári næstu fjögur árin verða þjóðhagsáhrif aðgerðanna á hagvöxt og einkaneyslu mjög lítil og verðbólguáhrif nær engin. Það eru líka rök fyrir því að beina skuldaniðurfellingin hefði mátt vera stærri.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra, sem aldrei hafa látið deigan síga þrátt fyrir mikinn mótvind, mega nú vel við una. Án þeirra atfylgis væri þessi annars ágæta áætlun ekki að sjá dagsins ljós núna.“