fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Fordild Alþingis

Egill Helgason
Fimmtudaginn 21. nóvember 2013 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef áður gert að umræðuefni frekju Alþingis gagnvart skipulagsmálum í miðbænum.

Skýringarnar eru held ég ekki mjög flóknar. Forseti Alþingis er eins konar ráðherraígildi. Hann hefur samt sáralítið að sýsla – kraftar síðustu forseta hafa einkum farið í að þenja út starfsemi þingsins. Þannig hefur orkan farið í alls kyns bygginga- og skipulagssýsl – á sama tíma og virðing Alþingis hefur verið í algjöru lágmarki.

Forsetarnir hafa lítið gert til að bregðast við því. Hin efnislega sýnd er þeim hugleiknari en hin pólitíska reynd.

En forsetarnir vilja setja mark sitt á eitthvað – og það virðist helst vera mælt í skrifstofuhaldi og húsakosti.

Nú vill forsætisnefnd Alþingis hnekkja skipulagsvaldi Reykjavíkur á svokölluðum Landsímareit. Þeim sem þar sitja finnst ekki nógu fínt að fá þangað hótel. Tíðkast nú hin breiðu spjótin, borgin á meira að segja að hafa brotið stjórnarskrána.

Samt er það svo að rétt hjá Alþingi er annað hótel, Hótel Borg, hið elsta í bænum. Bak við á Kirkjutorgi er komið hótel sem nefnist Kvosin.

En Alþingi hefur ekki verið aðgerðalaust – skrifstofur þess teygja sig út um allan miðbæinn, um nánast alla norðurhlið Aðalstrætis, yfir í gamla Moggahúsið, um Kirkjustræti og Vonarstræti.

Reyndar er þetta tímabundið ástand, því á vef Framkvæmdasýslu ríkisins má kynnast miklum byggingaáætlunum. Til að rýma fyrir þeim var til dæmis fært hús úr Vonarstræti yfir í Tjarnargötu. Þetta hefur tafist aðeins, kannski vegna ástandsins í efnahagsmálunum.

Síðasta forseta þingsins, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, var svo mikið niðri fyrir vegna þessa að hún vildi taka mestallt skipulagsvald í Miðborginni undir Alþingi.

En fyrstu orðin sem manni dettur í hug þegar maður heyrir af þessu eru: Fordild, snobb, hégómi.

deiliskipulag-samsett

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð