fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Hin mikla bjórdrykkja Króata á Hótel Grand

Egill Helgason
Mánudaginn 18. nóvember 2013 21:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er merkilegt hvað er hægt að gera mikið veður út af fótboltaleikum, á tímanum þegar hvorki leikmenn né boltinn eru inni á vellinum.

Þetta var reyndar ekki alltaf svona – einu sinni var nokkurn veginn látið nægja að lýsa því sem gerðist í leiknum sjálfum.

Nú finnst manni nánast eins og það sem skeður utan hans sé jafn mikilvægt, hið eilífa umtal um heilsufar fótboltamanna og einhverjar smávægilegar yfirsjónir þeirra.

Einn hallærislegasti uppsláttur sem maður hefur séð í íslenskum fjölmiðli nýskeð er „fréttin“ um að leikmenn króatíska landsliðsliðsins í fótbolta hafi fengið sér nokkra bjóra eftir leikinn á föstudaginn – á Hótel Grand.

Nú má vel vera að þetta hafi gerst, það er staðhæft á einum stað, á öðrum stað er þetta dregið til baka, hótelstjórinn á Grand segir að þeir hafi fengið sér gos og samloku.

Hvaða máli skiptir þetta? Ekki urðu þeir sér til skammar á hótelinu, rifu upp klósettsetur eða hentu sjónvörpum út um gluggann. Það fer engum sögum af ólátum. Eða mun þetta ráða úrslitum um getu Króatanna í leiknum á morgun? Voru það bjórarnir á Grand sem skiptu sköpum?

Og þurfti íslenskur blaðamaður að spyrja króatíska þjálfarann að þessu á blaðamannafundi í Zagreb? Hann þarf kannski að fylla sína dálksentímetra og fá fleiri smelli á netinu.

En smekklegt er þetta ekki.

800px-Croatia_football_team_-_Croatia_vs._Portugal,_10th_June_2013

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð