fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Einkafyrirtæki hefði ekki borgað mikið fyrir tillögur hagræðingarhópsins

Egill Helgason
Mánudaginn 18. nóvember 2013 08:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórður Víkingur Friðgeirsson er lektor við Háskólann í Reykjavík og kennir þar meðal annars námskeið í áætlunargerð og áhættustjórnun. Hann hefur gefið út bók á þessu sviði sem nefnist Áhætta, ákvarðanir og óvissa.

Þórður skrifar á Facebook-síðu sína um tillögur hagræðingarnefndar – kannski er þarna kominn kjarni máls um þær?

„Segjum að þessi hagræðingarhópur hefði verið að vinna fyrir einkafyrirtæki sem hefði beðið um úttekt á hvar mætti hagræða í rekstri. Ég velti fyrir mér hvað slíkt fyrirtæki hefði verið til í að borga fyrir þessa löngu upptalingu? Engin forgangsröðun, engir útreikningar, ekkert mat á flækjustigi eða áhættu. Engin flokkun í grúppur eða tengingar við verkefni. Þessu til viðbótar kæmist einkafyrirtækið að því að stór hluti þessarar upptalningar væri kominn í framkvæmd áður en listinn kom fram.

Ég veit það ekki en ég held að þótt ásetningurinn væri góður væri einkafyrirtæki ekki tilbúið að greiða mikið fyrir þetta, því miður.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi