fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Mikið fylgi til skiptanna við brotthvarf Jóns Gnarr – nær Björt framtíð að gera sig gildandi í borginni?

Egill Helgason
Miðvikudaginn 30. október 2013 11:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef rétt er skilið ætlar Jón Gnarr ekki að gefa aftur kost á sér til setu í borgarstjórn.

Það er að sumu leyti smart – gjörningnum sem hófst í upphafi árs 2010 er hreinlega lokið. Hann heppnaðist fáránlega vel.

En Jón skilur eftir sig tómarúm. Án hans er Besti flokkurinn ekki neitt. Viðbúið er að aðrir meðlimir hópsins hætti líka.

Hins vegar má búast við því að Björt framtíð – sem varð að nokkru leyti til upp úr Besta flokknum – reyni að hasla sér völl í borgarstjórninni.

Með þokkalegum frambjóðendum á sá flokkur ágæta möguleika í borgarstjórnarkosningum. En flokkur sem fékk 8 prósent í alþingiskosningum mun seint ná hæðum Besta flokksins, þá þarf eitthvað mikið að koma til.

Um leið hlýtur að fara straumur um fulltrúa gömlu flokkanna sem eiga sæti í borgarstjórninni, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og VG. Þarna er allt í einu möguleiki á að endurheimta fylgið sem Jón Gnarr hefur tekið.

Samkvæmt síðustu skoðanakönnun eru það 37 prósent, hvorki meira né minna. Meira en þriðji hver Reykvíkingur. Það er semsagt talsvert til skiptanna.

 

jon-gnarr-besti-flokkurinn

Jón Gnarr hrærði aldeilis upp í hlutunum. Nú er spurning hvernig þeir setjast aftur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins