Noregur getur eyðilagt olíudrauma Íslendinga, má lesa í Aftenbladet í Noregi.
Nýir stjórnarflokkar í Noregi hafa ákveðið að hætta við olíuleit á Jan Mayen svæðinu og það getur haft mikil áhrif á fyrirætlanir Íslendinga um olíuvinnslu þar.
Möguleikar Íslands hafa ekki síst legið í því að vera í samfloti við Norðmenn.
Aftenbladet hefur eftir Terje Hagevang, stjórnarmanni í olíufélaginu Eykoni, og þein sem hefur málað olíuframtíð Íslendinga í hvað björtustum litum, að hann hafi búist við að nýja ríkisstjórnin hætti við olíuleit við Lófóten en hann hafi ekki órað fyrir að hið sama yrði uppi á teningnum við Jan Mayen.
Hann segir ennfremur að þetta sé illa gert af Norðmönnum, því Íslendingar þarfnist þess að upplifa svipað olíuævintýri og Norðmenn hafa gert síðustu áratugina.